23 júní 2007

¡Hola guapos!
Okei.. sko! Sorry hvad thad er langt sidan vid skrifudum ykkur sidast en thad er bara buid ad vera alltof gaman hja okkur! ;) Svo var tilhugsunin um ad sitja inni í tolvunni svo óthaegileg thegar thad var svona lítill tími eftir af passanum. En nú hefur okkur loksins tekist ad klára hann svo vid tímum alveg ad sitja inni í smá stund og gefa ykkur smá updeit.
Eftir óvedrid í Cannes kom vedur, sem okkur líkadi svo vel ad vid haettum okkur út fyrir. Héldum uppteknum haetti og villtumst beint nidrá strond. Oldurnar voru svo gedveikar ad vid gátum ekki látid bakpokana aftra okkur svo vid skildum thá bara eftir uppi á gangstétt og stungum okkur útí. Vorum thar meira og minna allan daginn. Létum sólina samt therra okkur ádur en vid fórum upp í lestina.
Slepptum takinu af sólinni svo thid gaetud fengid smá og fórum upp fjollin í Andorra, thar sem vid vorum bókstaflega í skýjunum!! ;) Fólkid hélt frekar furdulega upp á 17. júní thar sem hálf thjódin keyrdi hring eftir hring framhjá hostelinu okkar og lá á flautunni thar til loggan skarst í leikinn rétt ádur en vid duttum inní draumalandid.
Thadan fórum vid til Oviedo thví vid aetludum ad fara ad ganga í Picos de Europa sem er á nordur Spáni. Thad vard thví midur ekkert úr thví en nú hofum vid allavega komid til Oviedo! Jess! Vid nadum thó ad skoda baeinn ágaetlega ádur en vid yfirgáfum hann. Á leidinni til Barcelona langadi okkur adeins ad fara til Bilbao og sjá Guggenheim safnid eftir Frank Gehry (sem ég skrifadi ritgerd um:). Vid komum thangad rétt eftir ad safnid lokadi en eyddum óvenju stuttum klukkutíma fyrir utan og nádum nokkrum myndum og naestu lest til Barcelona.
Vid vorum komin eldsnemma um morguninn en mér var svo ógedslega flokurt í lestinni og hvorugt okkar svaf eitthvad svakalega mikid, svo vid sofnudum naestum thví inná naesta kaffihúsi eftir áhrifalitla hressingu. Svo thegar vid vorum loksins ordin nógu hress til ad fara fundum vid frítt internet sem hélt okkur ennthá lengur tharna. Fundum heimilisfangid hans Alvaro á google maps og tókum mynd af thví. Til ad gera langa sogu stutta vorum vid villt í Cornellá (sem er eins og Kópavogurinn) í nokkra tíma en fundum loksins húsid hans (fjolskyldunnar) sem er vid hlidiná metróinu thar sem vid komum upp. Thad var enginn heima thví hann var í París ad spila med hljómsveitinni sinni og Aloma bjóst vid okkur daginn eftir og svaradi ekki í símann. Hann hafdi líka óvart gefid okkur upp vitlaust númer. En eftir ad hafa hitt hálfa blokkina kom bródir hans loksins heim og hringdi í Alomu. Stuttu seinna kom hún heim úr vinnunni og vid lobbudum saman thangad sem thau búa saman med nokkrum odrum strákum.
Á fostudaginn fórum vid til Figueres og aetludum til Cap de Creus en thad er víst miklu erfidara ad komast thangad en vid bjuggumst vid og eina lestin sem vid gátum tekid var seinasta lestin og hún fór ekki fyrr en eftir nokkra tíma og thá hefdum vid ekki komist til baka thannig ad vid ákvádum ad fara bara e-n tíman seinna. Notudum samt tímann og fórum á Dalí safnid sem var ótrúlega flott. Á leidinni aftur til Barcelona stoppudum vid í Girona og lobbudum adeins um baeinn. Mjog gódur dagur bara en thetta var líka sídasti dagurinn af interrail passanum svo vid vildum nýta hann vel og komum ekki til Barcelona fyrr en seint um kvoldid.
Í gaer var dagur Sant Juan sem er, ásamt Gamlárskvoldi, staersta hátíd ársins í Cataloniu. Oll born baejarins voru med litlar sprengjur sem átti ad kasta í jordina eda kveikja í og sprengjulaeti út um allt. Manni brá alveg í hvert skipti. Um kvoldid forum vid svo í gedveikt partý sem var haldid í risastóru og eldgomlu steinhúsi uppí fjollunum c.a. klukkutíma nordur af Barcelona. Thar voru allir vinir theirra samankomir og partýid stód fram á eldrauda nótt eda thangad til sólin lét sjá sig aftur. Thad var laekur tharna rétt hjá sem madur gat badad sig í en vatnid var einum of kalt fyrir okkur Ara.
Fórum í ekta spaenskan hádegismat til mommu hans Alvaro kl.15:00 (alveg í siestunni) og kíktum svo í sundlaugina hjá bródur hans.
Núna erum vid búin ad vera í 3 daga hérna í Barce og hofum ekki enn séd neitt af rádi... búinnnn tíminn

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir þessa frásögn. Þá styttist víst í að þið farið til Andyar og Lynn og þar er líklega ekkert tölvunet...
Bestu kveðjur héðan! Sólskin og blíða hér þessa dagana.

Nafnlaus sagði...

Good brief and this mail helped me alot in my college assignement. Thanks you as your information.